Samkvæmisdansar fyrir fullorðna
Boðið verður uppá námskeið í samkvæmisdönsum fyrir fullorðna. Fyrir byrjendur erum við með 12 vikna námskeið sem hefjast um miðjan september eða janúar. Námskeiðið er samansett af 11 kennslutímum og einu balli. Ef þið hafið dansað áður þá er dansskólinn með mjög marga framhaldshópa og væri auðvelt að finna eitthvern hóp við hæfi.
Öll framhaldsnámskeiðin eru í 14 vikur. 13 kennslutímar og 1. ball.
Námskeiðin eru byggð uppá hóptímum þar sem kennsla fer fram einu sinni í viku á sama tíma. Í samkvæmisdönsum eru kenndir hinir svokölluðu standard dansar sem eru t.d. walts, tangó, vínarvals, foxtrot og suður-amerískir dansar sem eru t.d. jive, cha-cha-cha, samba og rúmba.
Á námskeiðunum hjá okkur er lögð áhersla á að allir skemmti sér vel og að þú lærir eitthvað sem nýtist þér. Við viljum minna á að starfsmanna og stéttarfélög veita styrki vegna dansnámskeiða.
Byrjendanámskeið í samkvæmisdönsum fyrir fullorðna – Haustönn 2016
Boðið verður uppá byrjendanámskeið fyrir fullorðna. Kennslan er 1 x í viku, á fummtudagskvöldum frá kl. 21:00-22:00. Fyrsti tíminn er þann 15. september.
Kennslan er í 11 skipti og svo endum við önnina með glæsilegu jólaballi í Turninum.
Námskeiðið kostar 36.900 kr. fyrir parið.