Við erum með mikið af keppnispörum í dansskólanum okkar á öllum aldri.
Kennslan í hóptímum fer fram 3-4 sinnum í viku. Fer eftir aldri og hvað hver og einn er komin langt.
Í gegnum árin hafa danspör DÍK náð frábærum árangri í danskepppnum heima og erlendis. Má þar nefna að árið 2013 er helmingur keppnispara sem eru í landliði Dansíþróttasambands Íslands frá DÍK. Einnig unnu danspör frá DÍK árið 2014, 19 bikar og Íslandsmeistaratitla á seinasta dansmóti vetrarins af 40 mögulegum og er gaman að segja frá því að við unnum alla byrjendaflokka sem við tókum þátt í. DÍK vann einnig liðakeppnina á dansmóti UMSK árið 2014, þar sem samanlögð stig í öllum flokkum voru tekin saman og það félag sem var með flest stig hlaut verðlaunabikar. Einnig má nefna að á árinu 2015 unnu sterku danspörin okkar helming allra Íslands- og Bikarmeistaratitla í meistaraflokkum. Við erum rosalega stolt af þessum framúrskarandi árangri okkar félagsmanna.
